Fjárlög 1996

Föstudaginn 15. desember 1995, kl. 19:14:00 (2043)

1995-12-15 19:14:00# 120. lþ. 67.1 fundur 1. mál: #A fjárlög 1996# frv., SvG
[prenta uppsett í dálka] 67. fundur


[19:14]

Svavar Gestsson:

Virðulegi forseti. Ég tel út af fyrir sig einboðið að samþykkja þessa tillögu sem hér er flutt en hún er auðvitað staðfesting á þeim allsherjarvandræðagangi sem er á meðferð fjárlaganna af hálfu hæstv. ríkisstjórnar. Ég tel að það sé full ástæða til að stjórnarandstaðan veiti sinn atbeina til þess að ríkisstjórnin geti gengið þannig frá sínum málum að það liggi fyrir að hún er með öll mál í steik núna síðustu dagana fyrir jól.