[19:19]
Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson):
Herra forseti. Ég vil láta það koma fram að ég er mótfallinn þessari brtt. Ég tel að nóg sé að gert með frv. eins og það er. Samband íslenskra sveitarfélaga fór ekki fram á þessa heimild. Borgarstjórn Reykjavíkur fór ekki fram á þessa heimild. Og ég tel að heppilegast sé að frv. sé eins og hv. félmn. gekk frá því.