Ferill 334. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1995–96. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 334 . mál.


587. Frumvarp til laga



um veitingu ríkisborgararéttar.

(Lagt fyrir Alþingi á 120. löggjafarþingi 1995–96.)



1. gr.

    Ríkisborgararétt skulu öðlast:
    Apas, Charito Canete, fiskvinnslukona í Vogum, f. 14. júlí 1969 á Filippseyjum.
    Björnsson, Veronica Margaret, ritari í Reykjavík, f. 24. maí 1944 í Englandi.
    Guidice, Diana, verkakona í Reykjanesbæ, f. 27. mars 1957 í Keflavík.
    Hansen, Evald Ægir, afgreiðslumaður í Mosfellsbæ, f. 7. nóvember 1972 í Reykjavík.
    Hill, Cheryl Lynn, leiðbeinandi í Reykjavík, f. 7. maí 1968 í Bandaríkjunum.
    Jamora, Cirila, iðnverkakona í Reykjavík, f. 6. júlí 1973 á Filippseyjum.
    Krouská, Jarmila, húsmóðir á Akureyri, f. 7. febrúar 1952 í Tékklandi.
    Lafleur, Jaqueline Marilyn, listakona í Sandgerði, f. 27. desember 1927 í Bandaríkjunum.
    Libongcogon, Mimie Ruda, húsmóðir á Seyðisfirði, f. 2. júní 1962 á Filippseyjum.
    Orongan, Hernanita Neis, húsmóðir í Reykjavík, f. 4. júní 1964 á Filippseyjum.
    Ritchie, Hulda Valdimarsdóttir, ellilífeyrisþegi í Reykjavík, f. 22. desember 1917 í Hnífsdal.
    

2. gr.

    Þeir sem heita nöfnum sem ekki fullnægja reglum laga um mannanöfn, nr. 37 27. mars 1991, skulu ekki öðlast íslenskt ríkisfang samkvæmt lögum þessum fyrr en fullnægt er ákvæðum 15. gr. laga um mannanöfn. Sama gildir um börn þeirra.
    

3. gr.

         Lög þessi öðlast þegar gildi.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Umsækjendur þeir, sem teknir hafa verið í lagafrumvarp þetta, fullnægja skilyrðum sem sett hafa verið af allsherjarnefnd Alþingis.
    Frumvarp þetta er annað frumvarp til laga um veitingu ríkisborgararéttar sem borið er fram á 120. löggjafarþingi.