Ferill 383. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1995–96. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 383 . mál.


673. Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um niðurskurð á fé til heilsugæslu og forvarnarstarfs.

Frá Svanfríði Jónasdóttur.



    Hvernig hyggst ráðherra bregðast við þeirri stöðu sem upp er komin að heilsugæslustöðvar geta ekki lengur hagrætt eða skorið niður almennan rekstur, þar með taldar forvarnir, til að mæta niðurskurði ríkisins og neyðast til að leggja alveg niður suma þætti forvarnarstarfs, sbr. fréttir frá Akureyri þar sem verið er að leggja niður reglubundna krabbameinsleit?