Ferill 384. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1995–96. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 384 . mál.


674. Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um þróunarverkefni í heilsugæsluforvörnum.

Frá Svanfríði Jónasdóttur.



    Hverjar eru ástæður þess að ákveðið var við fjárlagagerð fyrir árið 1996 að hætta stuðningi við þróunarverkefnið „nýja barnið“ sem farið hefur fram á vegum fjölskylduráðgjafar heilsugæslunnar á Akureyri undanfarin tvö ár, nú þegar verkefnið er rétt hálfnað og sýnt að forvarnirnar sem í því felast skila árangri?
    Hve miklar hafa fjárveitingar til verkefnisins verið undanfarin tvö ár?