Ferill 245. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1995–96. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 245 . mál.
1131. Skýrsla
dómsmálaráðherra um kynferðis- og sifskaparbrotamál, samkvæmt beiðni.
(Lögð fyrir Alþingi á 120. löggjafarþingi 1995–96.)
Með beiðni (á þskj. 331) frá þingmönnunum Drífu Sigfúsdóttur, Ólafi Erni Haraldssyni, Sigríði A. Þórðardóttur, Svavari Gestssyni, Jóni Kristjánssyni, Kristínu Ástgeirsdóttur, Magnúsi Stefánssyni, Össuri Skarphéðinssyni, Ísólfi Gylfa Pálmasyni, Hjálmari Jónssyni, Svanfríði Jónasdóttur, Hjálmari Árnasyni, Bryndísi Hlöðversdóttur og Kristjönu Bergsdóttur var óskað eftir skýrslu dómsmálaráðherra um kynferðis- og sifskaparbrotamál. Í skýrslunni skyldu eftirfarandi upplýsingar koma fram:
1. Inngangur.
Margir liðir beiðninnar gáfu tilefni til viðamikillar gagnasöfnunar hjá dómstólunum, ríkissaksóknara, Rannsóknarlögreglu ríkisins og víðar og síðan úrvinnslu úr gögnunum. Hefur vinna við skýrsluna því tekið lengri tíma en ætlað var.
Leitað var til Karls Steinars Valssonar, afbrotafræðings hjá lögreglustjóranum í Reykjavík, og safnaði hann upplýsingum í skýrsluna og vann úr þeim ásamt starfsmönnum ráðuneytisins. Við öflun upplýsinga um niðurstöður dóma í kynferðis- og sifskaparbrotamálum var stuðst við nýútgefið dómasafn Hæstaréttar Íslands á tölvutæku formi.
Þess ber að geta að með lögum nr. 40/1992 voru gerðar talsverðar breytingar á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga, nr. 19/1940. Þar á meðal var heiti kaflans breytt úr skírlífisbrot í kynferðisbrot. Í skýrslunni er hugtakið kynferðisbrot notað yfir brot samkvæmt XXII. kafla, fyrir og eftir gildistöku laga nr. 40/1992.
Vakin er athygli á fyrri svörum dómsmálaráðherra við fyrirspurnum frá Alþingi um skylt efni. Má þar nefna svar dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Drífu Sigfúsdóttur á 120. löggjafarþingi, sbr. þskj. 231. Þá svaraði dómsmálaráðherra tveimur fyrirspurnum frá Önnu Ólafsdóttur Björnsson á 117. löggjafarþingi, annars vegar um meðferð ríkissaksóknara á málum er varða kynferðisbrot og hins vegar um meðferð Rannsóknarlögreglu ríkisins á málum er varða kynferðisbrot.
Enn fremur er vakin athygli á ítarlegri skýrslu nauðgunarmálanefndar sem dómsmálaráðuneytið gaf út árið 1989.
2. Upplýsingar um fjölda nauðgana og hlutfall kærðra nauðgana.
Ekki er kunnugt um að rannsóknir sem gefa hugmynd um árlegan fjölda nauðgana hafi verið gerðar hér á landi. Þess má þó geta að verið er að vinna skýrslu um umfang heimilisofbeldis á vegum dómsmálaráðuneytisins og að því tilefni er unnið að ítarlegri rannsókn sem getur gefið veigamiklar upplýsingar um þessi mál. Væntalega verður hægt að kynna niðurstöður þeirrar rannsóknar á næstu missirum.
Af framangreindri ástæðu er ekki hægt að segja til um hve hátt hlutfall nauðgana er kært til yfirvalda. Gerðar hafa verið miklar umbætur í heilbrigðiskerfinu og réttarvörslukerfinu til að tryggja betri umgjörð um þessi mál í heild sinni. Má þar nefna neyðarmóttöku á Sjúkrahúsi Reykjavíkur sem er talin tryggja mun faglegri rannsókn og umönnun fórnarlamba en áður þekktist. Þá hefur slík neyðarmóttaka einnig verið opnuð á Akureyri.
3. Kynferðisbrotamál til meðferðar hjá ríkissaksóknara.
Tafla 1 hefur að geyma upplýsingar um fjölda kynferðisbrotamála sem borist hafa ríkissaksóknara frá árinu 1985. Í töflu 2 er yfirlit sem sýnir sérstaklega hvaða hegningarlagaákvæði mál síðustu þriggja ára vörðuðu. Hafa ber í huga að umtalsverðar breytingar voru gerðar á þeim kafla hegningarlaga sem fjallar um kynferðis- og sifskaparbrot með lögum nr. 40/1992. Af þeim sökum er samanburður við eldri ákvæði mjög erfiður og ekki raunhæfur.
Tafla 1. Meðferð kynferðisbrotamála hjá embætti ríkissaksóknara 1985–1995.
Ár
Málafjöldi
Ákærur
Dómar
Sáttir
Niðurfellingar
Ákærufrestanir/Annað
1985
26
9
9
6
9
2
1986
28
15
15
10
3
0
1987
21
13
13
5
3
0
1988
31
8
8
4
19
0
1989
33
13
13
6
14
0
1990
54
24
24
3
27
0
1991
65
22
22
9
34
0
1992
54
18
18
3
33
0
1993
60
30
30
0
30
0
1994
58
23
23
3
32
0
1995
99
38
0
59
2
Tafla 2. Mál vegna kynferðisafbrota til meðferðar hjá ríkissaksóknara 1993–1995.
Almenn hegningarlög
Fjöldi mála
Ákært
Frekari rannsókn
Sátt
Niðurfelling
Ólokið
1993:
196 gr. 4 4 0 0 0 0
200 gr. 1 1 0 0 0 0
202 gr. 1 1 0 0 0 0
Skírlífisbrot * 54 24 0 0 30 0
Samtals 60 30 0 0 30 0
1994:
194 gr. 8 8 0 0 0 0
196 gr. 6 6 0 0 0 0
201 gr. 3 3 0 0 0 0
202 gr. 12 11 0 0 1 0
209 gr. 4 2 0 1 1 0
Skírlífisbrot * 32 1 0 2 29 0
Sifskaparbrot 1 0 0 0 1 0
Samtals 66 31 0 3 32 0
1995:
194 gr. 36 13 1 0 21 1
195 gr. 1 1 0 0 0 0
196 gr. 12 7 0 0 5 0
198 gr. 3 2 0 0 1 0
200 gr. 6 2 0 0 4 0
201 gr. 2 0 0 0 2 0
202 gr. 24 8 0 0 16 0
209 gr. 12 3 0 0 9 0
210 gr. 3 2 0 0 1 0
Samtals 99 38 1 0 59 1
* XXII. kafli almennra hegningarlaga bar yfirskriftina skírlífisbrot fyrir gildistöku laga nr. 40/1992 en með þeim var ýmsum ákvæðum kaflans breytt og sjálfu kaflaheitinu í kynferðisbrot.
Af þessu yfirliti má sjá að kærum í þessum brotaflokki hefur fjölgað mjög undanfarin ár, einkum á síðastliðnu ári er 99 slíkar kærur bárust ríkissaksóknara. Ástæður þessarar aukningar geta verið margar og framangreindar lagabreytingar þar á meðal. Sem fyrr segir hefur ýmislegt verið gert til að auðvelda fórnarlömbum slíkra brota að leggja fram kæru. Um 85% þeirra mála þar sem ríkissaksóknari ákærir lýkur með sakfellingu en einungis um 15% með sýknudómi. Í hluta málanna er hins vegar ekki gefin út ákæra þar sem fyrirliggjandi upplýsingar eru ekki taldar veita nægjanleg líkindi til sakfellingar fyrir dómi.
Helstu ástæður niðurfellingar mála eru að ekki er talið líklegt að sakfelling náist fram, kærandi fellur frá kæru eða óskar eftir því að mál sé fellt niður. Mikill meiri hluti þeirra mála þar sem ákæra er gefin út lýkur með sakfellingu. Einungis 10–15% mála í þessum málaflokki lýkur með sýknudómi.
Ef litið er til meðferðar kynferðisbrotamála hjá ríkissaksóknara kemur í ljós að í flestum málum er ákæra gefin út innan mánaðar frá því að mál berst frá lögreglu. Þó eru undantekningar frá þessu því að í sumum tilvikum er ákæra gefin út innan viku frá því að mál berst, en einnig líður lengri tími í sumum tilvikum. Á allra síðustu árum hefur þeim málum fjölgað nokkuð þar sem ákærur eru gefnar út aðeins nokkrum dögum eftir að mál berast ríkissaksóknara.
4. Dómar í kynferðis- og sifskaparmálum.
Í töflu 3 má sjá þá kynferðisbrotadóma sem komu til fullnustu til Fangelsismálastofnunar. Um er að ræða bæði óáfrýjaða héraðsdóma og hæstaréttardóma.
Tafla 3. Refsingar í kynferðisbrotamálum 1986–1995.
Ár
Óskb
Óskb+sekt
Óskb+skb
Óskb+skb+sekt
Skb
Skb+sekt
Sekt
Ekki refsing
Annað
Samtals
1986
4
0
6
0
1
0
0
0
0
11
1987
4
1
4
0
2
0
0
0
0
11
1988
9
0
0
0
3
0
0
0
0
12
1989
4
0
3
0
4
0
0
1
0
12
1990
11
0
4
0
6
0
1
0
0
22
1991
8
0
4
0
9
0
0
0
0
21
1992
10
0
1
0
3
0
0
0
0
14
1993
16
0
1
0
5
0
1
0
0
23
1994
11
0
6
0
8
2
0
0
1
28
1995
16
0
4
0
3
0
1
1
0
25
5. Hæstaréttardómar er varða kynferðis- og sifskaparbrot.
Eftirfarandi samantekt er unnin upp úr hæstaréttardómum. Getið verður þeirra dóma sem varða ákvæði í XXI. og XXII. kafla almennra hegningarlaga, nr. 19/1940. Vakin er athygli á því að nokkrir dómar varða fleiri en eina grein hegningarlaga og er þeirra því getið við upptalningu fyrir hvert brot fyrir sig.
Yfirlit yfir dóma Hæstaréttar Íslands, fyrir gildistöku laga nr. 40/1992, er vörðuðu kynferðis- og sifskaparbrot.
Nauðgun: Tíu dómar gengu þar sem refsing var ákveðin 12 til 48 mánaða fangelsi.
Nauðgun og líkamsárás: Fjórir dómar þar sem refsing var ákveðin 24 til 54 mánaða fangelsi.
Nauðgunartilraun: Einn dómur þar sem refsing var ákveðin 10 mánaða fangelsi.
Manndráp og nauðgunartilraun: Einn dómur þar sem refsing var ákveðin 8 ára fangelsi (96 mánaða).
Kynferðisbrot gagnvart börnum: Fimm dómar þar sem refsing var ákveðin 2 til 30 mánaða fangelsi.
Kynferðisbrot gagnvart þroskaheftum einstaklingum: Þrír dómar þar sem refsing var ákveðin 2 til 5 mánaða fangelsi.
Önnur kynferðisbrot: Níu dómar þar sem refsing var ákveðin 3 til 12 mánaða fangelsi.
Samantekt á dómum eftir að lög nr. 40/1992 tóku gildi og fram til ársins 1994.
Nauðgun: Tveir dómar þar sem refsing var ákveðin 12 og 24 mánaða fangelsi.
Nauðgun og líkamsárás: Fjórir dómar og var refsing ákveðin 15 til 30 mánaða fangelsi en í einu máli var refsað fyrir fleiri alvarleg brot og refsing ákveðin 12 ára fangelsi (144 mánuðir).
Kynferðisbrot gagnvart börnum: Fjórir dómar gengu um kynferðisbrot gagnvart börnum og var refsing dæmd 10 til 15 mánaða fangelsi.
Kynferðisbrot gagnvart þorskaheftum einstaklingi: Einn dómur og var refsing 5 mánuðir, þar af 3 skilorðsbundnir.
Önnur kynferðisbrot: Átta dómar gengu um önnur kynferðisbrot. Refsing 6 til 48 mánaða fangelsi.
Sifskaparbrot – XXI. kafli almennra hegningarlaga, nr. 19/1940. Allir hæstaréttardómar um sifskaparbrot frá 1982 til 1994.
188. og 189. gr. Engir dómar fundust er vörðuðu þessar greinar.
190. gr.
Hrd. 1988:666 X ákærður fyrir kynferðismök við börn sín. Sakfelldur fyrir kynmök við eina dóttur sína. Dæmdur í 2 1 / 2 árs fangelsi.
191. og 192. gr. Engir dómar fundust er vörðuðu þessar greinar.
193. gr.
Hrd. 1993:578 Tveir aðilar ákærðir fyrir að svipta foreldri forræði barna sinna og reyna að koma þeim úr landi. Dómur 8 mánuðir og 2 ára fangelsi.
Hrd. 1993:906 Aðili ákærður fyrir kynferðis-, sifskapar- og húsbrot og tilraun til þjófnaðar. Dæmdur í 4 ára fangelsi.
Kynferðisbrot – XXII. kafli almennra hegningarlaga, nr. 19/1940. Allir hæstaréttardómar um kynferðisbrot eftir gildistöku laga nr. 40/1992, fram til ársins 1994.
194. gr.
Hrd. 1994:208 Málið ómerkt og vísað heim í hérað til frekari gagnaöflunar, aðalmeðferðar og dómsálagningar að nýju.
Hrd. 1994:230 Ákært og dæmt fyrir nauðgun. Refsing ákveðin 12 mánaða fangelsi.
Hrd. 1994:671 Ákært fyrir nauðgun og líkamsárás. Refsing ákveðin 2 ára fangelsi.
Hrd. 1994:826 Sýknað af ákæru um nauðgun vegna ófullnægjandi sannanna um sekt.
Hrd. 1994:1874 Ákært og dæmt fyrir kynferðisbrot. Refsing ákveðin 18 mánaða fangelsi.
Hrd. 1993:198 Fjórir menn voru ákærðir fyrir nauðgun, kynferðisbrot o.fl. hegningarlagabrot. Þeir voru dæmdir í 15 til 18 mánaða fangelsi.
Hrd. 1993:691 Tveir menn ákærðir fyrir nauðgun og hlutdeild í nauðgun. Þeir voru dæmdir í 2 ára fangelsi.
Hrd. 1993:890 Aðili ákærður fyrir nauðgun og frelsissviptingu. Dæmdur í 2 1 / 2 árs fangelsi og vísað úr landi að lokinni afplánun.
Hrd. 1993:1860 Aðili ákærður fyrir nauðgun en sýknaður vegna sönnunarskorts.
Hrd. 1993:1947 Aðili ákærður fyrir nauðgun, líkamsmeiðingar, rán, þjófnað, húsbrot og ölvun við akstur. Dæmdur í 12 ára fangelsi.
195. gr.
Hrd. 1993:27 Aðili ákærður og dæmdur í 6 mánaða fangelsi.
196. gr.
Hrd. 1994:1055 Ákært og dæmt fyrir tilraun til kynferðisbrots. Refsing ákveðin 6 mánaða fangelsi, þar af 3 mánuðir skilorðsbundnir.
Hrd. 1994:1230 Ákært og dæmt fyrir kynferðisbrot og brot á áfengislögum. Refsing 8 mánaða fangelsi.
Hrd. 1993:27 Aðili ákærður og dæmdur í 6 mánaða fangelsi.
197. gr.
Hrd. 1993:2242 Aðili ákærður fyrir kynferðisbrot gagnvart þroskaheftri konu. Dæmdur í 5 mánaða fangelsi, þar af 3 mánuði skilorðsbundna.
198. og 199. gr. Engir dómar fundust.
200. gr.
Hrd. 1994:639 Ákært og dæmt fyrir kynferðisbrot gagnvart börnum. Refsing ákveðin 10 mánaða fangelsi.
Hrd. 1994:1874 Ákært og dæmt fyrir kynferðisbrot. Refsing ákveðin 18 mánaða fangelsi.
Hrd. 1993:1943 Aðili ákærður og sakfelldur fyrir kynferðisbrot gagnvart barni. Refsing 12 mánaða fangelsi.
Hrd. 1992:1705 Aðili ákærður fyrir kynferðisbrot, áfengislagabrot og klám. Refsing 2 1 / 2 árs fangelsi.
Hrd. 1992:1774 Aðili ákærður fyrir kynferðisbrot gagnvart barni. Refsing 12 mánaða fangelsi.
201. gr.
Hrd. 1994:1849 Aðili ákærður og dæmdur fyrir kynferðisbrot gagnvart barni. Refsing 15 mánaða fangelsi.
Hrd. 1994:1874 Ákært og dæmt fyrir kynferðisbrot. Refsing ákveðin 18 mánaða fangelsi.
Hrd. 1992:1774 Aðili ákærður fyrir kynferðisbrot gagnvart barni. Refsing 12 mánaða fangelsi.
202. gr.
Hrd. 1994:230 Ákært og dæmt fyrir nauðgun. Refsing 12 mánaða fangelsi.
Hrd. 1994:639 Ákært og dæmt fyrir kynferðisbrot gagnvart börnum. Refsing ákveðin 10 mánaða fangelsi.
Hrd. 1994:1230 Ákært og dæmt fyrir kynferðisbrot og brot á áfengislögum. Refsing 8 mánaða fangelsi.
Hrd. 1994:1408 Ákært og dæmt fyrir kynferðisbrot. Refsing ákveðin 8 mánaða fangelsi.
Hrd. 1994:1849 Aðili ákærður og dæmdur fyrir kynferðisbrot gagnvart barni. Refsing 15 mánaða fangelsi.
Hrd. 1994:1874 Ákært og dæmt fyrir kynferðisbrot. Refsing ákveðin 18 mánaða fangelsi.
Hrd. 1993:691 Tveir menn ákærðir fyrir nauðgun og hlutdeild í nauðgun. Dæmdir í 2 ára fangelsi.
Hrd. 1993:906 Aðili ákærður fyrir kynferðis-, sifskapar- og húsbrot og tilraun til þjófnaðar. Refsing 4 ára fangelsi.
Hrd. 1993:1943 Aðili ákærður og sakfelldur fyrir kynferðisbrot gagnvart barni. Refsing 12 mánaða fangelsi.
Hrd. 1992:1705 Aðili ákærður fyrir kynferðisbrot, áfengislagabrot og klám. Refsing 2 1 / 2 árs fangelsi.
Hrd. 1992:1774 Aðili ákærður fyrir kynferðisbrot gagnvart barni. Refsing 12 mánaða fangelsi.
203.–208. gr. Engir dómar fundust.
209. gr.
Hrd. 1994:693 Ákært og dæmt fyrir kynferðisbrot gagnvart börnum. Refsing ákveðin 10 mánaða fangelsi.
Hrd. 1993:198 Fjórir menn ákærðir fyrir nauðgun, kynferðisbrot o.fl. hegningarlagabrot. Refsing 15 til 18 mánaða fangelsi.
Hrd. 1993:906 Aðili ákærður fyrir kynferðis-, sifskapar- og húsbrot og tilraun til þjófnaðar. Refsing 4 ára fangelsi.
Hrd. 1993:1943 Aðili ákærður fyrir kynferðisbrot gagnvart barni. Refsing ákveðin 12 mánaða fangelsi.
210. gr.
Hrd. 1994:693 Ákært og dæmt fyrir kynferðisbrot gagnvart börnum. Refsing ákveðin 10 mánaða fangelsi.
Hrd. 1992:1705 Ákært var og dæmd fyrir kynferðisbrot, áfengislagabrot og klám. Refsing ákveðin 2 1 / 2 árs fangelsi.
6. Samanburður á refsingum fyrir héraðsdómi og Hæstarétti í kynferðisbrotamálum.
Stórum hluta dóma héraðsdómstólanna í þessum málaflokkum eins og öðrum er ekki áfrýjað til Hæstaréttar og niðurstaða héraðsdóms því endanleg.
Samanburður á refsingum í einstökum málum getur verið ákaflega vandasamur og meðferð meðaltalstalna villandi. Þau brot sem einu nafni eru nefnd kynferðisbrot í XXII. kafla almennra hegningarlaga, nr. 19/1940, eru öll alvarleg en þó mjög mismunandi alvarleg. Sem dæmi má nefna nauðgun annars vegar og klám hins vegar. Þannig eru t.d. öll þau mál í töflunum hér á eftir sem lýkur með sektarrefsingu höfðuð vegna brota gegn 210. gr. laganna.
Í mörgum málanna er dæmt fyrir fleiri en eitt brot, ýmist sömu tegundar eða ólíkrar. Til viðbótar því kynferðislega ofbeldi sem beitt er bætist í sumum málunum við gróft ofbeldi af öðru tagi. Fleiri atriði hafa áhrif á þyngd refsingar, svo sem hvort um ítrekað brot er að ræða, hegningarauka eða að viðkomandi hafi rofið reynslulausn vegna afplánunar annars dóms. Tveir þyngstu dómarnir hleypa meðaltalinu talsvert upp. Í öðru málinu var dæmt 10 ár fangelsi en í hinu málinu 12 ára fangelsi. Dómar vegna minna alvarlegra brota draga meðaltalið hins vegar niður.
Með þessum fyrirvörum eru hér birtar tvær töflur yfir alla dóma sem gengið hafa vegna kynferðisbrota í Hæstarétti í þessum málaflokkum á árunum 1984 til 1994, annars vegar fram til gildistöku laga nr. 40/1992 (tafla 4) og hins vegar eftir gildistöku þeirra (tafla 5), og borin saman refsing í Hæstarétti annars vegar og samkvæmt héraðsdómi hins vegar. Síðara tímabilið er mun styttra og dómar færri. Samanburður á meðaltalstölum milli tímabila er vart marktækur þar sem samsetning mála milli tímabila er ekki sú sama og málin of fá til að dregnar verði af meðaltalstölunum víðtækar ályktanir.
Þar sem aðeins var um að ræða þrjá dóma vegna sifskaparbrota á þessu árabili er ekki gerð sérstök grein fyrir refsingum í þeim málum. Þess má geta að í tveimur málanna var einnig ákært og dæmt fyrir kynferðisbrot og þau mál eru bæði í eftirfarandi töflum.
Tafla 4. Samanburður á refsingum fyrir héraðsdómi og Hæstarétti í málum þar sem ákært var fyrir kynferðisbrot, samkvæmt XXII. kafla almennra hegningarlaga, frá árinu 1984 fram til gildistöku laga nr. 40/1992.
Dómar
Héraðsdómur
HæstirétturRefsing þar af skb. Refsing þar af skb.
Hrd. 1984:855 Sekt Sekt
Hrd. 1984:1181 120 mán. 120 mán.
Hrd. 1984:1303 Sekt Sekt
Hrd. 1985:300 4 mán. 4 mán. 10 mán. 7 mán.
Hrd. 1985:936 48 mán. 42 mán.
Hrd. 1985:1061 Ákv. refs. frestað Ómerking
Hrd. 1986:139 3 mán. 3 mán. Ómerking
Hrd. 1986:646 6 mán. 6 mán. 9 mán.
Hrd. 1986:682 Ákv. refs. frestað 3 mán. 2 mán.
Hrd. 1986:1287 36 mán. 36 mán.
Hrd. 1986:1427 36 mán. 30 mán.
Hrd. 1986:1613 1 mán. 7 mán.
Hrd. 1987:266B 36 mán. 36 mán.
Hrd. 1987:1179 3 mán. 3 mán. 5 mán. 3 mán.
Hrd. 1987:1280 Sekt Sekt
Hrd. 1988:166 42 mán. 30 mán.
Hrd. 1988:222 96 mán. 96 mán.
Hrd. 1988:241 30 mán. 24 mán.
Hrd. 1988:372 Sekt Sýkna
Hrd. 1988:666 48 mán. 30 mán.
Hrd. 1988:1293 24 mán. 18 mán.
Hrd. 1989:343 Sýkna 2 mán. varðh. 2 mán.
Hrd. 1989:352 Ákv. refs. frestað 2 mán. 2 mán.
Hrd. 1989:1716 18 mán. 24 mán.
Hrd. 1989:1741 54 mán. 54 mán.
Hrd. 1990:153 3 mán. Ómerking
Hrd. 1990:305 6 mán. 3 mán. 6 mán. 3 mán.
Hrd. 1990:420 13 mán. 36 mán.
Hrd. 1990:512 36 mán. 42 mán.
Hrd. 1990:585 15 mán. 15 mán.
Hrd. 1990:720 3 mán. 2 mán. 3 mán. 3 mán.
Hrd. 1990:1103 Sekt Sekt
Hrd. 1990:1164 1 mán. 2 mán.
Hrd. 1990:1482 18 mán. 12 mán.
Hrd. 1991:84 18 mán. 18 mán.
Hrd. 1991:264 48 mán. 48 mán.
Hrd. 1991:393 7 mán. 4 mán. 7 mán. 7 mán.
Hrd. 1991:802 9 mán. 6 mán. 9 mán. 6 mán.
Hrd. 1991:812 6 mán. 6 mán. 3 mán.
Hrd. 1991:1580 12 mán. 12 mán.
Hrd. 1992:48 Sýkna Sýkna
Hrd. 1992:87 18 mán. 24 mán.
Hrd. 1992:97 18 mán. 27 mán.
Hrd. 1992:704 48 mán. Sýkna
Hrd. 1992:916 8 mán. Sýkna
Hrd. 1992:956 10 mán. 3 mán. 18 mán.
Hrd. 1993:124 8 mán. 6½ mán. Ómerking
Samtals 840 mán. 31 mán. 856 mán. 32 mán.
Meðaltal 26 mán. og 8 dagar 1 mán. 26 mán. og 23 dagar 1 mán.
Rétt er að benda á að aðeins er hægt að bera saman refsingu í 32 málum af þeim 47 sem eru á listanum þar sem fangelsisrefsing er dæmd á báðum dómstigum. Í 10 málum er niðurstaðan ekki sambærileg og í 5 dómum er um sektarrefsingu að ræða á öðru eða báðum dómsstigum.
Tafla 5. Samanburður á refsingum fyrir héraðsdómi og Hæstarétti í málum þar sem ákært var fyrir kynferðisbrot, samkvæmt XXII. kafla almennra hegningarlaga, eftir gildistöku laga nr. 40/1992, fram til ársins 1994.
Dómur
Héraðsdómur
HæstirétturRefsing Þar af skb. Refsing Þar af skb.
Hrd. 1992:1705 24 mán. 30 mán.
Hrd. 1992:1774 12 mán. 12 mán.
Hrd. 1993:27 6 mán. 3 mán. 6 mán.
Hrd. 1993:198 8 mán. 18 mán.
Hrd. 1993:691 24 mán. 24 mán.
Hrd. 1993:890 18 mán. 30 mán.
Hrd. 1993:906 60 mán. 48 mán.
Hrd. 1993:1860 18 mán. Sýkna
Hrd. 1993:1943 12 mán. 9½ mán. 12 mán.
Hrd. 1993:1947 120 mán. 144 mán.
Hrd. 1993:2242 5 mán. 3 mán. 5 mán. 3 mán.
Hrd. 1994:208 12 mán. 9 mán. Ómerking
Hrd. 1994:230 12 mán. 12 mán.
Hrd. 1994:639 10 mán. 10 mán.
Hrd. 1994:671 12 mán. 24 mán.
Hrd. 1994:826 18 mán. Sýkna
Hrd. 1994:1055 6 mán. 3 mán. 6 mán. 3 mán.
Hrd. 1994:1230 8 mán. 8 mán.
Hrd. 1994:1408 8 mán. 8 mán.
Hrd. 1994:1849 10 mán. 15 mán.
Hrd. 1994:1874 15 mán. 18 mán.
Samtals 370 mán. 18½ mán. 430 mán. 6 mán.
Meðaltal 20 mán. og 5 dagar 1 mán. 23 mán. og 23 dagar 10 dagar
Rétt er að benda á að aðeins er hægt að bera saman refsingu í 18 málum af 21 á listanum þar sem fangelsisrefsing er dæmd á báðum dómstigum. Í þremur málum er niðurstaðan ekki sambærileg í héraði og Hæstarétti.
Í töflum 6 og 7 eru dregnar saman upplýsingar úr töflum 4 og 5 um samanburð á refsingum fyrir héraðsdómi og Hæstarétti í kynferðisbrotamálum.
Tafla 6. Meðaltalsrefsingar í héraði og Hæstarétti.
Meðaltalsrefsing Héraðsdómur Hæstiréttur Meðaltalsþynging
Fyrir l. nr. 40/1992 26 mán. og 8 dagar 26 mán. og 23 dagar 15 dagar
Eftir l. nr. 40/1992 20 mán. og 5 dagar 23 mán. og 27 dagar 3 mán. og 22 dagar
Samtals 24 mán. og 6 dagar 25 mán. og 22 dagar 1 mán. og 16 dagar
Tafla 7. Samanburður á refsingum í héraði og Hæstarétti samkvæmt töflum 4 og 5.
Tafla 4
Tafla 5
Samtals
Refsing þyngd í Hæstarétti
11
7
18
Refsiákvörðun héraðsdóms staðfest í Hæstarétti
18
10
28
Refsing vægari í Hæstarétti
7
1
8
Sýkna í héraði og Hæstarétti
1
1
Sýkna í héraði en sakfelling í Hæstarétti
1
1
Sakfelling í héraði en sýkna í Hæstarétti
3
2
5
Ákv. refsingar fr. skb. í héraði en ómerking í Hæstarétti
2
2
Ákv. refsingar fr. skb. í héraði en fangelsi skb. í Hæstarétti
1
1
Fangelsisdómar úr héraði ómerktir í Hæstarétti
3
1
4
7. Reglur um meðferð og rannsókn á meintum kynferðis- og sifskaparbrotum.
Flest kynferðis- og sifskaparbrotamál eru rannsökuð af Rannsóknarlögreglu ríkisins. Í handbók embættisins eru skýrar reglur um meðferð kynferðisbrotamála á rannsóknarstigi. Þær reglur fjalla um samskipti lögreglu við heilbrigðisstéttir og að hverju þarf að huga við þessar rannsóknir. Á það við um töku blóðsýna, upptökur á yfirheyrslum og sakbendingu. Um þessi atriði er fjallað í 72. gr. laga um meðferð opinberra mála, nr. 19/1991, þar sem veitt er heimild til að hljóðrita skýrslur vitna eða taka upp á myndband. Þótt í lagaákvæði sé talað um skýrslutöku vitna virðist sem það taki einnig til sakbornings. Þá er einnig bent á 15 gr. laga nr. 19/1991 þar sem fjallað er um hljóðritun og myndbandsupptöku fyrir dómi.
Þá má einnig geta þess að á vegum neyðarmóttöku Sjúkrahúss Reykjavíkur starfar nú hópur lögmanna sem kalla má út að nóttu sem degi til að aðstoða fórnarlömb kynferðisbrota, veita þeim lögfræðilega ráðgjöf, annast kröfugerð vegna skaðabóta og miskabóta og mæta með þeim fyrir dóm ef þurfa þykir. Dómsmálaráðuneytið veitir neyðarmóttökunni árlegan fjárstuðning vegna kostnaðar sem þjónustu lögmannanna er samfara.
Í lögum nr. 19/1991 eru engin fyrirmæli um sakbendingu eins og var í eldri lögunum. Þrátt fyrir það er gert ráð fyrir að sakbending verði notuð við rannsókn máls þegar þörf er talin á. Markmið sakbendingar er að sannreyna hvort maður beri kennsl á annan mann og skal hann þá látinn benda á þann mann í hópi manna ef þess er kostur. Í handbók dóms- og kirkjumálaráðuneytisins um meðferð opinberra mála er fjallað um sakbendingu á bls. 57–59.
Sakbending kemur aldrei til framkvæmda nema grunur hafi fallið á ákveðinn mann, en er sjaldan notuð af lögreglu við rannsókn afbrota. Lögregla hefur reglur um hvernig standa skuli að sakbendingu. Það eru einkum Rannsóknarlögregla ríkisins og lögreglan í Reykjavík sem nota sakbendingu þar sem slík rannsóknaraðferð er miklum takmörkunum háð í fámenni.
Benda má á nýlegan dóm Hæstaréttar frá 3. apríl 1992 þar sem fjallað var um sakbendingu.
8. Aðferðir til hlífðar fórnarlömbum kynferðis- og sifskaparbrota.
Umtalsverðar breytingar hafa orðið á rannsóknaraðferðum ef litið er til síðasta áratugar. Má þar nefna öflun sönnunargagna, rannsókn þeirra og vinnu með þau. Sömu sögu er einnig að segja um yfirheyrslur, einkum að því er varðar börn. Kynferðisbrot hafa þá sérstöðu meðal brota að fátítt er að vitni séu að þeim atburðum sem eiga sér stað. Af þeim sökum er framburður fórnarlamba mjög mikilvægur þegar mál eru til meðferðar í réttarkerfinu.
Reynt hefur verið eftir fremsta megni að fylgjast með þróun rannsókna erlendis og telja má að þær rannsóknaraðferðir sem beitt er hér á landi taki mið af því sem gerist í nágrannalöndum okkar.
Þegar mál koma af rannsóknarstigi á ákærustig koma til ákvæði sem stuðla eiga að því að hlífa fórnarlömbum brota án þess að gengið sé á rétt sakaðs manns. Almenna reglan um þinghöld í opinberum málum er að finna í 1. mgr. 8. gr. laga um meðferð opinberra mála, nr. 19/1991, þess efnis að þinghöld skuli háð í heyranda hljóði. Dómara er þó rétt að ákveða að dómþing skuli haldið fyrir luktum dyrum ef eitthvert eftirtalinna skilyrða er fyrir hendi.
Ákvæði b-liðar er sérstaklega mikilvægt fyrir fórnarlömb kynferðis- og sifskaparbrota. Þessum ákvæðum er í vaxandi mæli beitt til verndar brotaþolum og vitnum í málum af þessu tagi.
Fulltrúar félagsmálayfirvalda eru jafnan kallaðir til þegar skýrslur eru teknar af ungum fórnarlömbum brota fyrir dómi.
Telja verður að þær heimildir sem fyrir hendi eru til að hlífa fórnarlömbum við dómstólameðferð séu nýttar eins og kostur er. Beiting slíkra heimilda má þó aldrei stefna í hættu þeim rétti sakaðs manns að fá réttláta málsmeðferð. Dómurum landsins verður að treysta til að taka slíkar ákvarðanir og það er ekki á valdi ráðherra að hafa áhrif á í hve miklum mæli dómarar beita slíkum heimildum.
Þess má geta að á vegum dómsmálaráðuneytisins er starfandi nefnd sem upphaflega var falið að athuga hvort taka ætti upp það fyrirkomulag að ríkissjóður ábyrgðist greiðslur dæmdra bóta vegna kynferðisafbrota eða annarra grófra ofbeldisbrota. Í framhaldi af störfum nefndarinnar var lagt fram á Alþingi frumvarp um greiðslu ríkissjóðs á bótum til þolenda afbrota sem varð að lögum nr. 69/1995. Lögin taka gildi 1. júlí 1996.
Sömu nefnd hefur einnig verið falið að athuga hvort setja eigi í lög heimild til að leggja á nálgunarbann og enn fremur hvort fórnarlamb geti fengið betri aðgang að rannsóknarferlinu.
Öll þessi atriði ættu að stuðla að bættri réttarstöðu brotaþola í réttarvörslukerfinu.
9. Önnur viðurlög við kynferðisbrotum en fangelsisvist.
Í almennum hegningarlögum, nr. 19/1940, er ekki að finna nein sérviðurlög við kynferðisbrotum. Þó skal bent á ákvæði VII. kafla laganna um öryggisráðstafanir, sviptingu borgararéttinda og upptöku eigna, sérstaklega 62.–67. gr. en þau ákvæði eru svohljóðandi:
„62. gr. Nú er maður sýknaður samkvæmt ákvæðum 15. gr., eða niðurstaða dóms verður sú, samkvæmt ákvæðum 16. gr., að refsing sé árangurslaus, og má þá ákveða í dómi, ef nauðsynlegt þykir vegna réttaröryggis, að gerðar skuli ráðstafanir til að varna því, að háski verði að manninum. Ef ætla má, að vægari ráðstafanir, svo sem trygging, bann við dvöl á ákveðnum stöðum eða svipting lögræðis, komi ekki að notum, má ákveða, að honum sé komið fyrir á viðeigandi hæli. Skal þá hæstiréttur skipa honum tilsjónarmann, sem eftirlit hefur með því, að dvöl hans á hælinu verði ekki lengri en nauðsyn ber til. Þegar ástæða þykir til, getur dómsmálaráðherra leitað úrlausnar héraðsdóms, þar sem hælið er, hvort téðar ráðstafanir skuli teljast lengur nauðsynlegar, enda hafi umsagnar læknis verið leitað. Svo getur og tilsjónarmaður krafist þess, þegar ár er liðið frá dómsuppsögn eða síðasta dómsúrskurði, eða fyrr, ef dómsmálaráðherra samþykkir, að málið skuli að nýju lagt undir úrskurð dómstóls þess, sem áður segir. Ákvörðun hans má áfrýja eftir reglum um kæru í opinberum málum.
63. gr. Nú hefur orðið svo ástatt um mann til langframa, sem í 15. eða 16. gr. segir, eftir að hann hefur drýgt refsiverðan verknað, en áður en fullnaðardómur gengur í máli hans, og ákveður dómur þá, hvort refsing skuli dæmd eða hún eigi að falla niður. Ákveða má í dóminum, ef skilyrði samkvæmt 62. gr. þykja vera fyrir hendi, að ráðstöfunum samkvæmt þeirri grein skuli beitt í stað refsingar eða þangað til unnt þykir að framkvæma refsingu.
64. gr. [Felld brott.]
65. gr. Þyki það ljóst af málavöxtum, eftir að umsagnar læknis hefur verið leitað, að sakborningur, sem framið hefur brot undir áhrifum áfengis, geti ekki haft hemil á drykkjufýsn sinni, má ákveða í dómi, að hann skuli lagður inn á viðeigandi hæli til lækningar. Skal dómur þá hljóða um dvöl á hælinu allt að 18 mánuðum, eða, ef ítrekun á sér stað, allt að 3 árum. Dómsmálaráðherra ákveður, eftir tillögum stjórnar hælisins og hlutaðeigandi læknis, hvort leysa megi manninn af hælinu, áður en ofangreindur hámarkstími er liðinn, sökum þess að ætla megi, að hann hafi læknast.
66. gr. Ef nokkur heitist við annan mann eða hótar honum bana, brennu eða öðrum óförum, og refsingu verður annaðhvort ekki við komið eða hún þykir ekki veita næga tryggingu, getur ákæruvaldið hlutast til um, eftir kröfu þess, sem hlut á að máli, eða án kröfu hans, ef nauðsynlegt þykir vegna réttaröryggis, að dómsúrskurður gangi um það, hvort gera skuli ráðstafanir til varnar því, að hótunin sé framkvæmd, þar á meðal, hvort heitingamaður skuli setja tryggingu eða hvort setja skuli hann í gæslu. Dómstóll getur fellt ráðstafanirnar niður, ef þeirra þykir ekki lengur þörf vegna breyttra málavaxta.
Ef ákæruvaldið æskir þess, má jafnan leggja málið á ný undir úrskurð dómstóls. Hinn dómfelldi getur og jafnan krafist, þegar 6 mánuðir eru liðnir frá uppkvaðningu dóms eða síðasta úrskurði, og fyrr, ef ákæruvaldið samþykkir, að málið sé að opinberri tilhlutan lagt undir úrskurð dómstóls að nýju.
Dómsúrlausnum samkvæmt grein þessari má áfrýja eftir reglum um kæru í opinberum málum.
67. gr. Sé maður dæmdur í þyngri refsingu en varðhald, og mjög sennilegt má telja af því, hvernig glæp hans var háttað og andlegu ástandi hans er varið, svo og af undanfarandi breytni hans, að hann muni drýgja afbrot af vana eða í atvinnuskyni og sé því hættulegur umhverfi sínu, má ákveða í refsidómi eða síðar í sérstöku máli, sem höfðað er að tilhlutan ákæruvaldsins, að beitt skuli öryggisráðstöfunum samkvæmt 66. gr. að refsingu lokinni. Létta má slíkum ráðstöfunum af aftur eftir sömu reglum og um getur í 66. gr.“
Ákvæði 65. gr. var beitt í hæstaréttarmáli frá árinu 1988, bls. 241 í dómasafni, en í því máli var ákærði dæmdur í 6 mánaða fangelsi og til 15 mánaða hælisvistunar að auki vegna kynferðisbrota. Fyrrnefndum ákvæðum hefur ekki að öðru leyti verið beitt í kynferðisbrotamálum á undanförnum 10 árum en í nokkrum tilvikum hefur verið gerð krafa um slíkt.