Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) (andsvar):
Herra forseti. Ef umhvn. þarf það langan tíma, sem vel má vera, til að fara yfir þetta frv. þá mun ég ekki sjá ástæðu til að setja mig gegn því að sú tillaga sem liggur fyrir og er efnislega samhljóða verði afgreidd. (SJS: Þakka.)