Stefán Guðmundsson:
Virðulegi forseti. Menn munu verða þess áskynja á eftir þegar frhnál. verður lagt fram að lokinni þessari atkvæðagreiðslu að á þessum þætti er tekið þar. Þar er skýrt tekið fram að Samkeppnisstofnun á að koma að þessu máli og það veit reyndar hv. þm. Svavar Gestsson.