Samgönguráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar):
Herra forseti. Það er auðvitað matsatriði hvernig á að standa að eða hvort rétt sé að taka framkvæmdir við Hvalfjörð inn í vegáætlun og finnst mér sjálfsagt að það sé athugað við meðferð málsins í þinginu. Ég vil á hinn bóginn minna á að samkvæmt vegáætlun er gert ráð fyrir að greiða gamlar skuldir Vegasjóðs og ég hygg að það séu rúmar 800 millj. kr. til þess arna nú á þessu ári sem til þess eru ætlaðar. Mér finnst rétt að sú þingnefnd sem fær málið til meðferðar setji sig inn í þá útreikninga og átti sig á hver sé staða Vegasjóðs gagnvart ríkissjóði í tengslum við þetta mál.