Vegáætlun 1997 og 1998

Mánudaginn 17. febrúar 1997, kl. 17:19:30 (3553)

1997-02-17 17:19:30# 121. lþ. 71.12 fundur 309. mál: #A vegáætlun 1997-2000# þál., MS (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 71. fundur

[17:19]

Magnús Stefánsson (andsvar):

Herra forseti. Ef hv. þm. á við þegar gildandi áætlun fyrir þetta ár, sem ég geri ráð fyrir að þingmaðurinn sé að vitna til, þá er það auðvitað þannig að fjárlög ganga lengra heldur en tillaga um vegáætlun þannig að ég tel að það séu engar líkur á að við getum breytt gildandi fjárlögum. Ég vona að ég hafi skilið hv. þm. rétt, að hún hafi átt við þetta ár, en ég get bara svarað þessu á þennan hátt.