Forseti (Ólafur G. Einarsson):
Borist hefur eftirfarandi bréf:
,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér, með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis, að óska þess að 1. varaþm. Sjálfstfl. í Vesturl., Guðlaugur Þór Þórðarson stjórnmálafræðingur, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.
Sturla Böðvarsson, 2. þm. Vesturl.``
Kjörbréf Guðlaugs Þórðarsonar hefur verið samþykkt en hann hefur ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber því að undirrita drengskaparheit að stjórnarskránni.