Forseti (Ragnar Arnalds):
Það eru nokkur strangar reglur um það í þingsköpum að hver þingmaður getur einungis tekið til máls einu sinni og gert stutta athugasemd þegar um fyrirspurn er að ræða þannig að ef hv. þm. sér sig tilknúinn að bera af sér sakir, þá verð ég að koma því að eftir að fyrirspurnatímanum er lokið.