Sólveig Pétursdóttir:
Virðulegi forseti. Ég vil bara ítreka að þetta er samkomulagsmál í allshn. þar sem allir fulltrúar nefndarinnar eru samhljóða í sínu mati á því að þetta frv. nái fram að ganga, þar á meðal fulltrúi Alþb.
Enn fremur vek ég athygli á því að bæði brunamálastjóri og fulltrúi frá Landssambandi slökkviliðsmanna voru fengnir sem gestir til að ræða þetta mál og enginn ágreiningur hefur komið fram um það.