Forseti (Guðmundur Árni Stefánsson):
Forseti vill geta þess vegna ummæla hv. þm. að eins og forseti gat um var þess að vænta að hæstv. ráðherra yrði hér um hálfeittleytið. Forseta hafa borist boð um að ráðherrann verði seinn fyrir. Ef það hentar hv. þm. ekki illa þá vill forseti grípa til þeirra ráða að fresta fundi til kl. hálftvö. (HG: Ég þigg það, virðulegur forseti.)