Pétur H. Blöndal (andsvar):
Herra forseti. Hlutverk hagstofa er að taka niður gögn og skrá þau og vinna úr þeim hagtölur. Mér er ekki kunnugt um að hagstofur neins staðar standi í því að skrá fyrirtæki og halda utan um þau lagalegu atriði að athuga hvort búið sé að greiða inn hlutafé og annað slíkt.
Spurning mín til hæstv. ráðherra er: Veit hann til þess að þetta sé nokkurs staðar í heiminum í höndum hagstofa?