Össur Skarphéðinsson:
Herra forseti. Hér fyrr á öldinni gekk stjórnmálaflokkur til kosninga undir kjörorðinu ,,fólk í fyrirrúmi``. Þessi atkvæðagreiðsla er enn ein sönnum þess að Framsfl. er upptekinn við að svíkja hvert kosningaloforðið á fætur öðru sem hann gaf. Ég tek hér upp merki Framsfl., ég segi fólk í fyrirrúmi. Ég segi já.