Samningur um bann við framleiðslu efnavopna

Mánudaginn 28. apríl 1997, kl. 18:09:20 (5721)

1997-04-28 18:09:20# 121. lþ. 113.1 fundur 593. mál: #A samningur um bann við framleiðslu efnavopna# þál., ÖS (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 113. fundur

[18:09]

Össur Skarphéðinsson (andsvar):

Herra forseti. Ég tók eftir því að í máli hæstv. ráðherra kom fram að hann var ekki viss um það hvort það yrði Hollustuvernd sem tæki þetta að sér. Hann sagði: ,,Ef það verður Hollustuvernd ...`` Þess vegna vil ég spyrja: Hefur hæstv. starfandi utanrrh. leitað ráða og spurt hæstv. umhvrh. hvort þetta verður niðurstaðan hjá ríkisstjórninni?