1997-05-17 03:58:38# 121. lþ. 129.17 fundur 620. mál: #A félagsleg aðstoð# frv., KHG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 129. fundur

[27:58]

Kristinn H. Gunnarsson (andsvar):

Herra forseti. Málið er til hagsbóta fyrir þá sem það varðar sagði þingmaðurinn. Það er ekki alveg rétt. Það er til hagsbóta fyrir suma sem málið varðar en það er íþyngjandi fyrir aðra vegna þess að það á kostnaðarlega séð að koma út á sléttu. Það á að bæta við hjá sumum og þá viðbót á að taka af hinum. Ég er að spyrja um hag þeirra sem verða fyrir skerðingu vegna frv.