Kosning forseta skv. 1. mgr. 3. gr. þingskapa

Þriðjudaginn 01. október 1996, kl. 14:35:25 (5)

1996-10-01 14:35:25# 121. lþ. 0.2 fundur 3#B kosning forseta skv. 1. mgr. 3. gr. þingskapa#, Aldursforseti RA
[prenta uppsett í dálka] 0. fundur

[14:33]

Aldursforseti (Ragnar Arnalds):

Nú fer fram kosning forseta Alþingis. Samkvæmt 1. mgr. 3. gr. þingskapa eru þeir einir í kjöri sem tilnefndir eru. Ég óska því eftir tilnefningum.

Forseta hefur borist tilnefning um 1. þm. Reykn., Ólaf G. Einarsson. Aðrar tilnefningar hafa ekki borist. Ólafur G. Einarsson er því einn í kjöri.

Þar sem aðeins einn er í kjöri er það ætlan forseta að láta kosninguna fara fram með atkvæðagreiðslukerfinu. Kerfið hefur verið stillt þannig að jafna má við leynilega atkvæðagreiðslu. Töflurnar á veggjunum munu aðeins sýna hverjir hafa neytt atkvæðisréttar síns en ekki hvernig þeir greiddu atkvæði og sama gildir um minni tölvunnar. Þeir sem kjósa Ólaf G. Einarsson ýti á já-hnappinn. Þeir sem skila vilja auðu ýti á hnappinn sem merktur er: Greiðir ekki atkvæði. Gult ljós kviknar á töflum og á tækjum við sæti þingmanna þegar atkvæði hefur verið greitt hvernig sem það hefur fallið.

Þessi tilhögun er reyndar sú sama og viðhöfð var sl. haust en hún var á ný borin undir formenn þingflokka og voru ekki gerðar athugasemdir við að hafa þennan háttinn á aftur. Ég bið hv. alþingismenn að gera nú þegar viðvart ef einhverjir þeirra una ekki við þessa tilhögun. Komi fram mótmæli frá einhverjum hv. þingmanni fer fram skrifleg kosning.

Þar sem ekki eru gerðar athugasemdir við þennan hátt á kosningunni hefst nú atkvæðagreiðslan.