Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) (andsvar):
Herra forseti. Það eru nokkur dæmi þess að í þessum hópi sé fólk sem hefur gengið í ábyrgðir og ábyrgðirnar hafa fallið á það. En það alls ekkert einhlítt. Þetta er líka fólk sem greinilega hefur verið að safna skuldum á talsvert löngu árabili og hefur farið í gegnum skuldbreytingar og tekið greiðsluerfiðleikalán.