Árni Steinar Jóhannsson fyrir SJS

Þriðjudaginn 12. nóvember 1996, kl. 13:33:56 (1024)

1996-11-12 13:33:56# 121. lþ. 21.95 fundur 79#B Árni Steinar Jóhannsson fyrir SJS#, Forseti ÓE
[prenta uppsett í dálka] 21. fundur

[13:33]

Forseti (Ólafur G. Einarsson):

Borist hefur svohljóðandi bréf:

,,Þar sem ég er á förum til útlanda opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að 1. varaþm. Alþb. og óháðra í Norðurl. e., Árni Steinar Jóhannsson umhverfisstjóri, Akureyri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.

Steingrímur J. Sigfússon, 4. þm. Norðurl. e.``

Kjörbréf Árna Steinars Jóhannssonar hefur verið rannsakað og samþykkt. Hann hefur ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber því að undirrita drengskaparheit að stjórnarskránni.