Fjárlög 1997

Laugardaginn 14. desember 1996, kl. 12:13:01 (2239)

1996-12-14 12:13:01# 121. lþ. 44.1 fundur 1. mál: #A fjárlög 1997# frv., GÁS (um atkvæðagreiðslu)
[prenta uppsett í dálka] 44. fundur

[12:13]

Guðmundur Árni Stefánsson (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég skildi orð hæstv. fjmrh. á þann veg að sú viljayfirlýsing sem er að finna í þessari tillögu, þessum nýja lið í 6. greinar heimildum, verði upp tekin við 3. umr. í ljósi yfirlýsinga hæstv. heilbrrh. frá í gærkvöldi, með öðrum orðum að andvirði sölunnar á landi í eigu Vífilsstaða verði notað til byggingar barnaspítala. Í trausti þess er tillagan dregin til baka til 3. umr.