Afbrigði

Þriðjudaginn 17. desember 1996, kl. 14:14:30 (2299)

1996-12-17 14:14:30# 121. lþ. 47.92 fundur 144#B afbrigði# (afbrigði við dagskrá), Forseti ÓE
[prenta uppsett í dálka] 47. fundur

[14:14]

Forseti (Ólafur G. Einarsson):

Þá er leitað afbrigða um að 11. dagskrármál megi koma til umræðu og afgreiðslu á fundinum en það er of skammt liðið frá útbýtingu nefndarálits. (Gripið fram í: Það er ekki búið að dreifa nefndarálitinu.) Forseti er upplýstur um að það sé búið að dreifa því. (Gripið fram í: Það er ekki búið að dreifa því.) Forseti ætlar að ganga úr skugga um hvað er rétt í þessu.

Minnihlutaálitið um 11. dagskrármálið mun ekki vera komið og málið verður að sjálfsögðu ekki tekið fyrir fyrr en það liggur fyrir, en meirihlutaálitið liggur fyrir, og verður þá leitað afbrigða um málið.