Frsm. utanrmn. (Geir H. Haarde):
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nál. frá utanrmn. um þær tillögur sem forseti hefur kynnt, um fullgildingu hins svokallaða úthafsveiðisamnings. Utanrmn. hefur haft þetta þingmál til meðferðar í allt haust og hafði reyndar fylgst með aðdraganda málsins allvel undanfarin missiri. Nefndin leitaði álits bæði frá sjútvn. og umhvn. þingsins og þær nefndir báðar mæla með samþykkt tillögunnar eins og utanrmn. gerir samhljóða.