Stefán Guðmundsson (um atkvæðagreiðslu):
Virðulegi forseti. Ég kem upp til að taka undir orð hv. þm. Gísla S. Einarssonar. 6. gr. fjárlaga er vægast sagt sóðaskapur í lagagerð. Ég vil mælast til þess mjög ákveðið að fjárln. taki á þessu máli við gerð næstu fjárlaga. Það er vissulega um alvarlegt mál að ræða hvernig staðið er að meðferð á þessum lið fjárlaganna.