Ferill 334. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1996–97. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 334 . mál.


605. Fyrirspurn



til utanríkisráðherra um miðlun EES-gerða á íslensku um tölvunet.

Frá Hjörleifi Guttormssyni.



    Hver er staðan í miðlun EES-gerða á íslensku á vef alnetsins er varða íslenska löggjöf og reglugerðir, sem og gerðir sem eru á undirbúningsstigi gagnvart EES-ríkjum?
    Hvenær er þess að vænta að allar slíkar gerðir verði fyrirliggjandi öllum aðgengilegar?
    Hver er stefna ráðuneytisins um þýðingu á dómum Evrópudómstólsins og miðlun þeirra í tölvutæku formi á íslensku?