Ferill 435. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1996–97. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 435 . mál.
741. Skýrsla
dómsmálaráðherra til Alþingis um stöðu umferðaröryggismála.
(Lögð fyrir Alþingi á 121. löggjafarþingi 1996–97.)
Í þingsályktun um stefnumótun er varðar aukið umferðaröryggi og framkvæmdaáætlun sem samþykkt var á Alþingi 28. febrúar 1996 segir m.a.
„Dómsmálaráðherra kynni Alþingi í byrjun hvers árs stöðu umferðaröryggismála og hvernig áætluninni miðar í átt að settu marki. Starfs- og framkvæmdaáætlun verði endurskoðuð árlega.“
Umferðaröryggisáætlun þarf að vera í stöðugri endurskoðun og markvisst starf má ekki falla niður ef markmiðum hennar skal fylgt eftir og náð.
Til að vinna að framgangi áætlunarinnar skipaði ég vinnuhóp til að endurskoðaverkefni áætlunarinnar og til að gefa ráðherra og Alþingi árlega upplýsingar umhvernig henni vindur fram svo og til að gera nýjar tillögur um áherslur og verkefni. Í nefndina voru skipaðir: Þórhallur Ólafsson, formaður Umferðarráðs, formaður, Georg Kr. Lárusson, sýslumaður og Rögnvaldur Jónsson framkvæmdastjóri hjá Vegagerðinni. Auk þeirra hafa starfað með nefndinni þeir Óli H. Þórðarson, Sigurður Helgason og Örn Þorvarðarson starfsmenn Umferðarráðs.
Nefndin hefur skilað áliti þar sem m.a kemur fram að á árinu 1996 fækkaði skráðum umferðarslysum meira en áætlunin gerði ráð fyrir og er það fagnaðarefni. Markmiðin eru nú skilgreind með öðrum hætti en var í umferðaröryggisáætluninni frá síðasta ári. Stefnt er nú að því að fyrir árslok 2000 verði alvarlega slasaðir og látnir færri en 200 á ári. Vonandi verður unnt að endurskoða þessi markmið á næsta ári ef slysum heldur áfram að fækka eins og raun varð á 1996.
Súlurit
Auk þessara meginmarkmiða setur nefndin fram lista yfir einstök verkefni sem ólokið er frá umferðaröryggisáætluninni, auk tillagna um önnur ný.
Í skýrslunni er hegðun vegfarenda talin vera lykilatriði. Aðalverkefnið er að koma markvissum skilaboðum til einstakra vegfarendahópa og hafa áhrif á þá, þannig að umferðin verði öruggari. Það á að vera sjálfsagt að umferðin sé örugg og slysalaus.
Nefndin álítur að besta leiðin til að ná árangri sé að einbeita sér að fáum lykilatriðum og forgangsraða verkefnum og að unnið sé á breiðum grundvelli með þátttöku margra aðila.
Lögð verður áhersla á fjögur meginviðfangsefni:
— ökuhraða,
— unga ökumenn,
— bílbelti og
— gatnamót.
Lögð er áhersla á að sem flestir taki þátt í verkefninu og að aðgerðir verði samræmdar samanber eftirtalin fjögur atriði:
— að virkja sem flesta til starfa að umferðaröryggismálum
— að beita sér fyrir að allir málsaðilar marki sér skýra starfsáætlun
— að hvetja til samstarfs sem getur leitt til árangurs
— að beina athyglinni að vegfarendum og umferðarháttum þeirra.
Lögð er áhersla á fá og afmörkuð verkefni á tímabilinu. Tekin eru fyrir þau svið sem ætla má að geti skilað mestum árangri til að fækka slysum. Virkja þarf sem flesta sem starfa að umferðaröryggismálum og auka samstarf að ákveðnum verkefnum. Hvetja þarf til enn markvissari og faglegri vinnubragða til að ná settum markmiðum.
Umferðaröryggisstarfið er að mörgu leyti í föstum skorðum og hefur tekið litlum breytingum frá ári til árs. Það á meðal annars við um sveitarfélög og aðra veghaldara, sem leggja áherslu á að fækka til dæmis „svartblettum“ á gatna- og vegakerfinu. Umferðareftirlit lögreglu lýtur að mörgu leyti sömu lögmálum.
Sömu sögu má segja um upplýsinga- og fræðslustarfið, meðal annars í tengslum við upphaf skólaárs.
Hagfræðistofnun Háskóla Íslands hefur gert úttekt á samfélagslegum kostnaði vegna umferðarslysa. Helstu niðurstöður eru þessar:
Ætla má að árlegur heildarkostnaður vegna umferðarslysa á Íslandi á næstu 2–3 árum nemi u.þ.b. 11–15 milljörðum króna, að öllu óbreyttu. Þetta jafngildir 3–4% af áætlaðri landsframleiðslu 1996.
SAMFÉLAGSKOSTNAÐUR
Meðaltal áranna 1980–1995
(milljarðar á verðlagi 1995).
Neðri Efri
mörk mörk
Einstaklingsbundið slysatjón
4
6
Samfélags slysatjón
7
9
Samtals
11
15
Umferðaröryggisáætluninni er ætlað að vera eins konar leiðarljós í umferðaröryggisstarfinu. Henni þarf hins vegar að fylgja eftir með aðgerðum og samvinnu fjölmargra aðila. Sé henni ekki fylgt eftir með markvissu starfi með tilheyrandi verk- og tímaáætlunum, mati á þörf fyrir aðgerðir á einstökum sviðum og forgangsröðun, hefur hún lítil áhrif. Þeir aðilar sem þurfa að gera áætlanir eru m.a.:
— stjórnvöld
— sveitarfélög
— vátryggingafélög
— ökukennarar
— samtök atvinnubifreiðastjóra
— samtök vegfarendahópa
Mikilvægt er að fylgjast með þróun mála á næstu árum. Þá þarf t.d. að fylgjast með áhrifum einstakra aðgerða, reyna að meta breytingar á hegðunarmynstri vegfarenda, þróun umferðar o.s.frv. Þannig þurfa að liggja fyrir með reglulegu millibili áfangaskýrslur um stöðu mála og árangur af starfinu.
Takist að ná settu markmiði mun þeim sem slasast alvarlega eða látast árlega í umferðarslysum hafa fækkað um 30 í lok tímabilsins.
Þrátt fyrir fækkun alvarlega slasaðra á undanförnum árum er framtíðarsýnin að sjálfsögðu sú að enginn látist eða slasist í umferðinni. Þó það virðist fjarlægt takmark er það samt sem áður það markmið sem Íslendingar hljóta að stefna að í umferðaröryggisstarfinu. Það er ekki ásættanlegt að gert sé ráð fyrir að það sé einskonar náttúrulögmál að milli 10–20 manns látist í umferðinni árlega og yfir 200 manns slasist alvarlega.
En er þetta raunhæft markmið? Það mun tíminn leiða í ljós. Á síðasta ári slasaðist 221 alvarlega í umferðarslysum hér á landi og 10 létust. Leita þarf allt aftur til ársins 1968 til þess að finna jafn lága tölu um fjölda látinna.
Markmið okkar á þessu ári er að bæta þennan árangur, en það verður einungis gert með sameiginlegu átaki allra landsmanna. Til þess að svo megi verða þarf hugarfarsbreytingu ökumanna og annarra í umferðinni. Allir bera ábyrgð, stjórnmálamenn, stjórnvöld, ökumenn og aðrir vegfarendur. Til þess að ná sem bestum árangri þarf vilja, eldmóð og samvinnu allra sem að umferðarmálum koma. Vonandi erum við að taka fyrstu skrefin í átt að því markmiði.
(Mynd frá umferðarráði.)