Ferill 595. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1996–97. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 595 . mál.


1038. Fyrirspurn



til viðskiptaráðherra um reglur Seðlabankans um verðtryggingu, nr. 330/1995.

Frá Jóhönnu Sigurðardóttur.



    Telur ráðherra að ákvæði 9. gr. reglna Seðlabanka Íslands, nr. 330/1995, um verðtryggingu sparifjár og lánsfjár o.fl., varðandi afnám verðtryggingar innstæðna samræmist ákvæðum V. kafla vaxtalaga?