Ferill 309. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1996–97. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 309 . mál.
1284. Nefndarálit
um till. til þál. um vegáætlun fyrir árin 1997–2000.
Frá meiri hluta samgöngunefndar.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Helga Hallgrímsson, Jón Rögnvaldsson, Hannes Sigurðsson og Eymund Runólfsson frá Vegagerðinni. Umsagnir bárust nefndinni frá Borgarfjarðarhreppi, Vegagerðinni, Súðavíkurhreppi, Broddaneshreppi, Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga, Öxarfjarðarhreppi, hreppsnefnd Lýtingsstaðahrepps, Bláfjallanefnd og Skógræktarfélagi Reykjavíkur.
Að þessu sinni er lagt til að einvörðungu tvö ár vegáætlunar verði endurskoðuð. Um þessar mundir er verið að ljúka mörgum stórum verkefnum og því þykir eðlilegra að miða við styttra tímabil en vani er. Gert er ráð fyrir að á næsta þingi verði lögð fram tillaga til þingsályktunar um vegáætlun til fjögurra ára, 1998–2001.
Að öðru leyti hafa starfshættir við afgreiðslu tillögunnar verið með hefðbundnum hætti. Þingmenn kjördæma hafa unnið að gerð tillagna um skiptingu framkvæmdafjár til almennra verkefna og verkefna í framkvæmdaátaki á stofnvegum, svo og til tengivega. Hlutföll milli kjördæma í þessum verkefnaflokkum eru hin sömu og fyrir árin 1997 og 1998 í gildandi vegáætlun (vegáætlun fyrir árin 1995–1998).
Breytingar eru gerðar á tekjuhlið áætlunarinnar á þann veg að tekjur ársins 1997 hækka um 150 millj. kr. frá tillögunni. Þessi hækkun byggist á endurskoðun markaðra tekna í apríl síðastliðnum. Sú endurskoðun bendir til að tekjur af bensíngjaldi hækki um 40 millj. kr., tekjur af árgjaldi þungaskatts hækki um 60 millj. kr. og tekjur af kílómetragjaldi þungaskatts hækki um 50 millj. kr. Endurskoðunin var gerð sameiginlega af starfsmönnum fjármálaráðuneytisins og Vegagerðarinnar.
Reiknað er með að tekjur haldi áfram að aukast 1998 og er tekjuáætlunin það ár hækkuð um 182 millj. kr. Á því ári er einnig tekið inn lánsfé vegna vegtenginga Hvalfjarðarganga að fjárhæð 400 millj. kr. Þetta er helmingur áætlaðs kostnaðar við tengingarnar og á að endurgreiðast af vegáætlun á árunum 1999–2003. Hinn helmingurinn kemur sem lánsfé í gegnum Spöl ehf. og á að endurgreiðast af veggjaldi eins og kostnaðurinn við sjálf göngin. Samkvæmt þessu hækkar niðurstöðutala ársins 1998 um 582 millj. kr.
Bæði árin eru hér reiknuð á sama verðlagi, þ.e. verðlagi ársins 1997 (áætluð vísitala vegagerðar 5350), enda á að leggja fram nýja vegáætlun á næsta þingi eins og áður sagði.
Skipting útgjalda breytist einnig nokkuð og eru helstu breytingarnar þær að auknar tekjur renna til almennra verkefna og bundinna slitlaga, höfuðborgarsvæðis og stórverkefna á stofnvegum, svo og tengivega og brúa 10 m og lengri. Þá hækka framlög til safnvega og tilrauna lítillega, en síðasttaldi liðurinn er bundinn í vegalögum.
Í tillögunni er gert ráð fyrir að frestað verði framkvæmdum á höfuðborgarsvæðinu vegna hættu á þenslu af völdum mikilla framkvæmda í stóriðju og virkjunum. Í útgjaldalið tillögunnar er þessi frestun sett upp þannig að 222 millj. kr. eru færðar af framkvæmdaliðum yfir á flóabáta (liður 2.9). Er þá miðað við að þessir fjármunir séu notaðir til að flýta afborgunum af lánum vegna ferja en fjármunina átti síðan að endurgreiða af liðnum flóabátar 1999. Reykjavíkurborg óskaði eftir því við samgönguráðherra að hætt yrði við þessa frestun. Í framhaldi af því var samið um að borgin frestaði framkvæmdum hjá sér sem næmi þessari upphæð, en í staðinn héldust vegaframkvæmdir óskertar. Liðurinn 2.9 til flóabáta er því lækkaður um áðurnefndar 222 millj. kr. og bætast við liðina 2.3.1.4 Framkvæmdaátak og 2.3.1.2 Höfuðborgarsvæðið.
Framkvæmdir í Hvalfirði eru teknar inn í gjaldahlið með sama hætti og í tekjuhlið. Þá er uppsetningu gjaldahliðar einnig breytt þannig að lán til verkefna á Skeiðarársandi og í Hvalfirði eru aðgreind frá fjárveitingum. Þessi lán eiga að greiðast af vegáætlun á næstu árum. Þessi nýja uppsetning þykir skýrari en sú fyrri, sem gerði ekki greinarmun á lánsfé og fjárveitingu að þessu leyti, og komist verður frekar hjá tvítalningu þegar fjárveitingar koma á vegáætlun til endurgreiðslu þessara lána.
Meiri hlutinn er sammála um að næsta vetur verði daglegar ferðir Baldurs yfir Breiðafjörð. Samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar hækkar það rekstrarkostnað Baldurs um tæplega 6 millj. kr. á ári. Jafnframt verði snjómokstursdögum fjölgað til samræmis við það.
Í athugasemdum með tillögunni kemur fram að nokkrar breytingar eru gerðar við vegaskrá og flokkun vega. Meiri hlutinn hefur farið yfir þessar breytingar og gerir ekki athugasemdir við þær, enda koma vegaskrárnar til endurskoðunar í heild á næsta þingi.
Alþingi, 13. maí 1997.
Einar K. Guðfinnsson,
Egill Jónsson.
Magnús Stefánsson.
form., frsm.
Stefán Guðmundsson.
Árni Johnsen.
Kristján Pálsson.
Fylgiskjal.
Vegagerðin:
Skipting vegafjár eftir kjördæmum.
Samantekt.
SKIPTING ÚTGJALDA
2.3. Til nýrra þjóðvega.
1. Stofnvegir, 2. Tengivegir og 3. Til brúagerðar, brýr > 10m.
Suðurland.
Stofnvegir.
Vegnr. Vegheiti
1997
1998
Kaflanr. Kaflaheiti
m.kr.
m.kr.
d5 Selfoss – Biskupstungnabraut 5
d6 Vegamót við Hveragerði 11
02 Hraunvegur – Stórhöfði 21
06 Flúðir – Hvítárdalur 8
02 Helgastaðir – Biskupstungnabraut 30
02-03 Steingrímsstöð – Gjábakkavegur 2 38
04 Reykjavegur – Biskupstungnabraut 52 11
01 Hringvegur – Þorlákshafnarvegur 12
Tengingar vegna breikkunar brúa 5 5 .................
Samtals 117 83
Tengivegir.
Vegnr. Vegheiti
1997
1998
Kaflanr. Kaflaheiti
m.kr.
m.kr.
02 Hagabraut – Galtalækur 21 18
01 Ásgarður – Fossar 10
01 Hringvegur – Fljótshlíðarvegur 9
01 Voðmúlastaðir – Gunnarshólmi 3 5
01 Strandarhöfuð – Njálsbúð 3 5
02 Hvolsvöllur – Hlíðarendi 3
01 Hringvegur – Oddi 16
03 Hólar – Landvegur 3
01 Hringvegur – Ásmúli 5
02 Um Háfshverfi 4
02 Stóranúpsvegur – Ásólfsstaðir 17 15
01 Hringvegur – Hamarsvegur 4
07 Bræðratunguvegur – Laugarvatnsvegur 12 8
01 Hringvegur – Þjórsárver 7
01 Eyrarbakkavegur – Gaulverjabæjarvegur 4
01 Skyggnir – Laxárdalur 4
01 Um Hruna 4 .................
Til brúagerðar. Brýr 10 m og lengri.
1997
1998
m.kr.
m.kr.
Reykjanes.
Stofnvegir.
Vegnr. Vegheiti
1997
1998
Kaflanr. Kaflaheiti
m.kr.
m.kr.
f9 Botnsvogur 9
14-19 Lýsing 35
14-19 Endurbætur 75
Frumhönnun Suðurstrandarvegar 2
Hringtorg og undirgöng 37 6
Tengivegir.
Vegnr. Vegheiti
1997
1998
Kaflanr. Kaflaheiti
m.kr.
m.kr.
01 Lagfæringar 5
01 Hringvegur – Bláfjöll 16 5
01 Sólheimar – Úlfarsfellsvegur 21
01 Um Meðalfellsvatn 5 .................
Reykjanes og Vesturland.
Vesturland.
Stofnvegir.
Vegnr. Vegheiti
1997
1998
Kaflanr. Kaflaheiti
m.kr.
m.kr.
g1 Botnsvogur 9
g5 Borgarnes 6
03 Götuás – Kleppjárnsreykir 30 63
09 Urriðaá – Bjarnarfoss 34
10 Vegamót Fróðárheiðar 10
09 Kolgrafafjörður 10
12 Búlandshöfði (heimaframlag) 25
12 Búlandshöfði (stórverkefni) 31
07 Búðardalur – Klofningsvegur 7 11 .................
Tengivegir.
Vegnr. Vegheiti
1997
1998
Kaflanr. Kaflaheiti
m.kr.
m.kr.
03 Götuás – Kleppjárnsreykir 37
02 Reykholt – Stóriás 55
01 Snjóastaðir 5
01 Snjóastaðir 17 .................
Til brúagerðar. Brýr 10 m og lengri.
1997
1998
m.kr.
m.kr.
Vesturland og Vestfirðir.
Stofnvegir.
Vegnr. Vegheiti
1997
1998
Kaflanr. Kaflaheiti
m.kr.
m.kr.
10-21 Gilsfjörður (S) 117 222
10 Gilsfjörður (H) 35 63
21 Gilsfjörður (H) 29 71 .................
Vestfirðir.
Stofnvegir.
Vegnr. Vegheiti
1997
1998
Kaflanr. Kaflaheiti
m.kr.
m.kr.
37 Dynjandisheiði 10
47 Jarðgöng (H) 41 5
47 Jarðgöng (S) 233
11 Um Víðidalsá 17
25-30 Ísafjarðardjúp (S) 60 90
36 Súðavík 1
45 Óshlíð 7 10
02-04 Rauðsdalur – Ósafjörður 31 52 .................
Tengivegir.
Vegnr. Vegheiti
1997
1998
Kaflanr. Kaflaheiti
m.kr.
m.kr.
01 Barðastrandarvegur – Flugvallarvegur 23
01 Djúpvegur – Hrafnabjörg 6
01 Djúpvegur – Nauteyri 5
04 Um Bala 10
01 Strandavegur – Hella 27 .................
Til brúagerðar. Brýr 10 m og lengri.
1997
1998
m.kr.
m.kr.
Norðurland vestra.
Stofnvegir.
Vegnr. Vegheiti
1997
1998
Kaflanr. Kaflaheiti
m.kr.
m.kr.
m4 Um Bólstaðarhlíðarbrekku 3
m5 Við Íbishól 2
m6 Við Varmahlíð, lýsing 3
m7 Um Húseyjarkvísl 2 10
m8 Við Djúpadalsá 1
03 Við Skagaströnd, lýsing 3
02 Út-Blönduhlíð 9
06 Hofsós – Höfðaá 50
09 Hraun – Almenningsnöf 59 .................
Tengivegir.
Vegnr. Vegheiti
1997
1998
Kaflanr. Kaflaheiti
m.kr.
m.kr.
01 Hringvegur – Mýrar 3
01 Hringvegur – Kolugil 1
01 Þórdísarlundur – Hnjúkur 16
01 Um Orrastaðaflóa 23
02 Héraðsdalsvegur – Svartárdalsvegur 2
03 Svartárdalsvegur – Jökulsá 37
01 Flugvallarvegur – skíðasvæði 2 .................
Til brúagerðar. Brýr 10 m og lengri.
1997
1998
m.kr.
m.kr.
Norðurland eystra.
Stofnvegir.
Vegnr. Vegheiti
1997
1998
Kaflanr. Kaflaheiti
m.kr.
m.kr.
p4 Krossastaðir – Ólafsfjarðarvegur 6
q7 Fosshóll – Aðaldalsvegur 100 95
09 Lágheiði 5
06-09 Tjörnes 10
11 Lindarbrekka – Uppsveitarvegur 30 52
25 Þistilfjörður, flugvöllur 8
04 Hvammavegur – Klambrasel 10 .................
Tengivegir.
Vegnr. Vegheiti
1997
1998
Kaflanr. Kaflaheiti
m.kr.
m.kr.
02-03 Laufás – Ártún 54
01 Neslandavík – Kísilvegur 45
Þingey, göngubrú 3 .................
Til brúagerðar. Brýr 10 m og lengri.
1997
1998
m.kr.
m.kr.
Norðurland eystra og Austurland.
Vegnr. Vegheiti
1997
1998
Kaflanr. Kaflaheiti
m.kr.
m.kr.
Tenging Norður- og Austurlands (S) 118 180
r6-r7 Jökulsá – Biskupsháls (H) 10 10
s1-s7 Biskupsháls – Skjöldólfsstaðir (H) 4 .................
Samtals 128 194
Norðurland eystra 80 10
Austurland 48 184
Austurland.
Stofnvegir.
Vegnr. Vegheiti
1997
1998
Kaflanr. Kaflaheiti
m.kr.
m.kr.
t0 Jökulsá á Dal, (S) 30 20
t1 Skóghlíð – Urriðavatn 33 40
u1 Um Breiðdalsá 18
u5 Um Fossárvík 30
v7 Laxá í Nesjum 11
x1 Uppsalir – Staðará 20
x5 Um Fjallsá 7
y0-y2 Skeiðarársandur 250 100
Einbreið slitlög 14 15
00 Egilsstaðir 4
06 Reyðarfjörður 4
12 Neskaupstaður 8
02 Borgarfjarðarvegur – Langahlíð 6
02 Miðhúsaá – Kofi 18
03 Kofi – Efri Stafur 16
03 Fjarðarárbrú 3
03 Þernunes – Vattarnes 75
06 Fáskrúðsfjörður 4
07 Um Selá 5
02-03 Höfn í Hornafirði 1 5
06 Um Gljúfursá 28
06 Um Öxl 8
Þéttbýlisstaðir Austurlandi
Lagfæringar á þjóðvegum 10 10
Austurlandsgöng 2 3 .................
Tengivegir.
Vegnr. Vegheiti
1997
1998
Kaflanr. Kaflaheiti
m.kr.
m.kr.
40 Hlíðarvegur – Deildarlækur 11
07 Á Vatnsskarði 18 36
01 Hlíðarvegur – Refstaður 4
01 Um Jökulsá hjá Hjarðarhaga 4
Til brúagerðar. Brýr 10 m og lengri.
Vegnr. Vegheiti
1997
1998
Kaflanr. Kaflaheiti
m.kr.
m.kr.
Höfuðborgarsvæðið.
Vegnr. Vegheiti
1997
1998
Kaflanr. Kaflaheiti
m.kr.
m.kr.
e3 Rauðavatn – Nesbraut 88
f3 Í Mosfellsbæ 210
01 Ánanaust, breikkun 37
12 Breiðholtsbraut – Fífuhvammsvegur 36
12 Gatnamót við Fífuhvammsveg 134 55
Leiðaval 1
02 Höfðabakki – Miklabraut 290 75
03 Breikkun Miklubrautar 23
03 Gatnamót við Skeiðarvog 160
01 Hringvegur – Bláfjöll 5 5
Undirgöng í Garðabæ 47
Göngubrýr og undirgöng 31 40
Skiltabrýr 5 10
Greiðsla skulda í Reykjavík 197 198
Ýmis verk 10 15 .................
Samtals 855 837
Stórverkefni, óstaðsett.
1997
1998
m.kr.
m.kr.
YFIRLIT
Skipting fjár.
1997
1998
m.kr.
m.kr.
Stórverkefni.
Vegnr. Vegheiti
1997
1998
Kaflanr. Kaflaheiti
m.kr.
m.kr.
12 Búlandshöfði 31
10-21 Gilsfjörður 117 222
47 Jarðgöng 233
25-30 Ísafjarðardjúp 60 90
Tenging Norður- og Austurlands 118 180
t0 Jökulsá á Dal 30 20
Austurlandsgöng 2 3
Jarðgangarannsóknir 2
Óskipt 38 .................
Til brúagerðar. Brýr 10 m og lengri.
Vegnr. Vegheiti
1997
1998
Kaflanr. Kaflaheiti
m.kr.
m.kr.