Kristinn H. Gunnarsson (andsvar):
Herra forseti. Mér þótti athyglisverð röksemdafærsla þingmannsins um að færri kjördæmi leiddu af sér meira jafnrétti milli kynja í fjölda þingmanna. Mig langar að spyrja þingmanninn hvort hann telji þá, með sömu rökum, að færri stjórnmálaflokkar leiði til aukins jafnréttis. (Gripið fram í: Útúrsnúningur.)