Íþróttalög

Föstudaginn 13. febrúar 1998, kl. 11:41:26 (3816)

1998-02-13 11:41:26# 122. lþ. 67.3 fundur 447. mál: #A íþróttalög# (heildarlög) frv., GGuðbj (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 67. fundur

[11:41]

Guðný Guðbjörnsdóttir (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. ráðherra fyrir svörin. Þau skýrðu vel til hvers hann ætlast af nefndinni að mínu mati. Ég held að þetta ákvæði sem hann nefndi um fyrirbyggjandi starf sé mjög mikilvægt varðandi þessar nýframkomnu skýrslur. Ýmislegt fleira er verulega umhugsunarvert og ekki síst fjármál íþróttahreyfingarinnar og hvernig þau koma inn á íþróttir kvenna. Ég mun beita mér fyrir því að það verði sérstaklega athugað við meðferð frv.