Skipan opinberrar nefndar um auðlindagjald

Fimmtudaginn 19. febrúar 1998, kl. 16:03:31 (4115)

1998-02-19 16:03:31# 122. lþ. 72.8 fundur 465. mál: #A skipan opinberrar nefndar um auðlindagjald# þál., GGuðbj (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 72. fundur, 122. lþ.

[16:03]

Guðný Guðbjörnsdóttir (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil taka undir margt í orðum hv. þm. sem hér hefur nýlokið máli sínu. Þó geri ég fyrirvara við það þegar hann segir að ákveðið sé að jafnaðarmenn og Kvennalistinn fari í samstarf fyrir næstu kosningar. Það er ekki ákveðið. Við vinnum að sameiginlegri málefnaskrá, þessir þrír flokkar en ekkert hefur verið ákveðið í því sambandi. Ég vil aðeins ítreka það.