Skipan opinberrar nefndar um auðlindagjald

Fimmtudaginn 19. febrúar 1998, kl. 17:59:54 (4146)

1998-02-19 17:59:54# 122. lþ. 72.8 fundur 465. mál: #A skipan opinberrar nefndar um auðlindagjald# þál., SvG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 72. fundur, 122. lþ.

[17:59]

Svavar Gestsson (andsvar):

Herra forseti. Varðandi spurninguna um skatt og ekki skatt þá vísa ég til ræðumanna okkar alþýðubandalagsmanna fyrr í dag, hv. þm. Margrétar Frímannsdóttur, hv. þm. Steingríms J. Sigfússonar og hv. þm. Kristins H. Gunnarssonar og í sjálfu sér er ekkert meira um það að segja. Afstaða okkar í þeim efnum er algerlega skýr.

Varðandi hins vegar það hvaða áhrif tillaga af þessu tagi hefur á aðrar tillögur sem hafa komið fram í þinginu þá er það auðvitað mál flutningsmannanna sjálfra að meta hvað þeir gera í þeim efnum. Ég þakka hv. 2. þm. Vesturl. fyrir hlýhug í garð okkar alþýðubandalagsmanna en við munum sjálfir af bestu getu reyna að meta hverjir eru hæfir til samstarfs við okkur og hverjir ekki.