Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson):
Herra forseti. Ég hef ekki tekið efnislega afstöðu til þeirrar tillögu sem liggur fyrir vegna þess að ég tel að það sé eðlilegt og í samræmi við þær yfirlýsingar sem gefnar voru að ræða málið í þessum samstarfshópi og móta þar afstöðuna.