Dómsmálaráðherra (Þorsteinn Pálsson):
Herra forseti. Vegna fyrispurnar hv. þm. þá get ég ekki hér greint nákvæmlega frá því hvaða forsendur lágu til mats fjárlagaskrifstofu fjmrn. en get lýst því yfir að að sjálfsögðu verður farið eftir ákvæðum kjarasamninga í þeim tilvikum sem sú grein tekur til sem hv. þm. vitnaði í, þannig að í engu verður vikið frá þeim.