Gagnagrunnar á heilbrigðissviði

Fimmtudaginn 16. apríl 1998, kl. 15:39:24 (5559)

1998-04-16 15:39:24# 122. lþ. 106.12 fundur 661. mál: #A gagnagrunnar á heilbrigðissviði# frv., heilbrrh. (um fundarstjórn)
[prenta uppsett í dálka] 106. fundur, 122. lþ.

[15:39]

Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Það er eðlilegt að þessi fyrirspurn sé borin upp. Þetta frv. sem hér verður til umfjöllunar innan skamms hefur verið í mikilli umræðu síðasta hálfa mánuðinn í þjóðfélaginu. Ég legg á það mikla áherslu að þetta mál fái vandaða meðferð og hef ítrekað það oftsinnis og geri það enn hér. Nú kemur þetta mál til kasta þingmanna og það mun fljótt koma í ljós hér í þinginu hvort þingmenn treysta sér til að afgreiða það á vandaðan hátt á þeim tíma sem eftir lifir þingsins.