Forseti (Ólafur G. Einarsson):
Forseti hefur skilið það svo að þetta mál hafi eingöngu verið lagt fram til kynningar. Það er of seint fram komið samkvæmt þingsköpum og ekki hefur verið óskað eftir því að það verði tekið á dagskrá með afbrigðum. Þetta er það sem forseta er kunnugt.