Forseti (Ólafur G. Einarsson):
Forseti hefur átt fund með formönnum þingflokka og varaforsetum og rætt um framhald fundarins. Forseti vill upplýsa að samkomulag er um að láta reyna á þingviljann á fundi í fyrramálið, um það hvort tekið verði á dagskrá næsta þingfundar þar á eftir frv. til breytinga á skipulags- og byggingarlögum. Að öðru leyti verði haldið áfram umræðu um sveitarstjórnarlagafrv.