Samgönguráðherra (Halldór Blöndal):
Herra forseti. Ég hygg að leigubílstjórum gefist eins og öðrum kostur á að sækja námskeið eða nám fyrir leiðsögumenn eins og öðrum en ég tek undir það að ef vilji er til þess hjá leigubílstjórum að sækja námskeið í ferðaþjónustu, þá stendur ekki á mér að fara þess á leit við Ferðamálaráð að það skipuleggi námskeið í samvinnu við leigubílstjóra.