Jóhanna Sigurðardóttir:
Herra forseti. Stofnun þessa nýja banka felur í sér markaðsvæðingu á félagslega íbúðalánakerfinu og að allri félagslegri aðstoð verði vikið til hliðar sem veitt hefur láglaunafjölskyldum tugþúsundum saman í 70 ára sögu félagslega íbúðalánakerfisins öryggi í húsnæðismálum.