Jóhanna Sigurðardóttir:
Herra forseti. Sérlán á sérkjörum til bygginga fyrir aldraða, til dagvistarstofnana fyrir börn, til einstaklinga með sérþarfir og greiðsluerfiðleikalán eru sett út í kuldann og verða hér eftir háð geðþóttaákvörðun Íbúðalánasjóðs. Verði heimildin á annað borð nýtt verða lánin líklega á markaðskjörum. Þetta er köld kveðja frá ríkisstjórninni til fatlaðra, aldraðra og fólks í greiðsluerfiðleikum.