Forseti (Ragnar Arnalds):
Forseti ítrekar ósk sína um að hér haldi ekki áfram efnislegar umræður um málið en gerir auðvitað ekki athugasemdir við að komið sé á framfæri einhverjum þeim formlegum athugasemdum sem snúa að efnismeðferð málsins í þinginu á næstu dögum.