Svavar Gestsson:
Herra forseti. Ég vil taka undir þau orð hv. 8. þm. Reykn. að nauðsynlegt sé að ræða þessi mál áður en þinginu lýkur. Ég sé að hæstv. sjútvrh. er í salnum og vil spyrja hann hvort hann geti ekki hugsað sér að beita sér fyrir umræðu um þetta mál áður en þinginu lýkur.