Skipting aukinna aflaheimilda

Fimmtudaginn 28. maí 1998, kl. 12:58:30 (7094)

1998-05-28 12:58:30# 122. lþ. 136.96 fundur 424#B skipting aukinna aflaheimilda# (aths. um störf þingsins), sjútvrh.
[prenta uppsett í dálka] 136. fundur, 122. lþ.

[12:58]

Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson):

Herra forseti. Vegna fyrirspurnar hv. 8. þm. Reykn. vil ég taka fram að ekki stendur til af hálfu ríkisstjórnarinnar að flytja á þessu þingi frv. til breytinga á fiskveiðistjórnarlögunum um þær grundvallarbreytingar sem hv. þm. var að inna eftir.

Af minni hálfu er hins vegar sjálfgefið að ef þessi mál koma til umræðu í þinginu samkvæmt þingsköpum er ég reiðubúinn að taka þátt í þeim umræðum.