Ögmundur Jónasson (andsvar):
Hæstv. forseti. Hér var flutt mjög góð og athyglisverð ræða af hálfu hv. þm. Egils Jónssonar. En ber að líta á ræðu hans sem viðvörun til kjósenda á Austurlandi um að kjósa Sjálfstfl. í næstu kosningum vegna þess að Sjálfstfl. á þá tvo ráðherra í þessari ríkisstjórn sem ráða mestu um þennan málaflokk, fjmrh. og samgrh.?