Vegáætlun 1998-2002

Fimmtudaginn 28. maí 1998, kl. 16:43:29 (7125)

1998-05-28 16:43:29# 122. lþ. 136.7 fundur 378. mál: #A vegáætlun 1998-2002# þál. 19/122, 379. mál: #A langtímaáætlun í vegagerð# þál. 20/122, EgJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 136. fundur, 122. lþ.

[16:43]

Egill Jónsson (andsvar):

Virðulegi forseti. Út af orðum hv. þm. vil ég gjarnan taka fram að það er ekki aðalatriðið hvernig maður lítur út í kosningum. Það skiptir mig meginmáli að skila þeim verkefnum sem ég tók að mér í síðustu kosningum að samrýmanlegar séu þeim áherslum sem bæði ég og Sjálfstfl. hafði uppi í þeim kosningum. Austfirðingar taka svo ákvarðanir sínar eins og þeir meta störf og stefnur við næstu alþingiskosningar.