Seðlabanki Íslands

Miðvikudaginn 03. júní 1998, kl. 14:14:44 (7381)

1998-06-03 14:14:44# 122. lþ. 142.12 fundur 581. mál: #A Seðlabanki Íslands# (bankaeftirlit, EES-reglur o.fl.) frv. 88/1998, Frsm. EOK
[prenta uppsett í dálka] 142. fundur, 122. lþ.

[14:14]

Frsm. efh.- og viðskn. (Einar Oddur Kristjánsson):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. frá efh.- og viðskn. um frv. til laga um breytingu á lögum um Seðlabanka Íslands nr. 36/1986, með síðari breytingum.

[14:15]

Frumvarp þetta er lagt fram samhliða frumvarpi til laga um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi og frumvarpi til laga um breytingu á sérákvæðum í lögum um fjármálaeftirlit, 560. og 561. máli. Samkvæmt fyrrnefndu frumvarpi verður 1. janúar 1999 komið á fót nýrri stofnun, Fjármálaeftirlitinu, sem mun annast þá starfsemi sem bankaeftirlit Seðlabankans og Vátryggingaeftirlitið hafa nú með höndum. Því eru hér felld brott ákvæði úr lögum um Seðlabanka Íslands sem lúta að starfsemi bankaeftirlitsins. Þá eru í frumvarpinu lagðar til ýmsar breytingar sem miða að því að færa lögin betur í takt við aðstæður á fjármagnsmarkaði.

Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með breytingum sem lagðar eru til í sérstöku þingskjali. Þær eru eftirfarandi:

1. Lagt er til að við 7. gr. bætist nýr málsliður sem kveður á um að þess skuli gætt sem frekast er kostur að samnýta upplýsingar sem aflað er samkvæmt lögum um opinbert eftirlit með fjámálastarfsemi, sbr. 38. gr. laganna. Með þessu er lögð áhersla á mikilvægi þess að koma í veg fyrir tvíverknað hjá Fjármálaeftirlitinu og Seðlabankanum í öflun upplýsinga hjá fjármálafyrirtækjum.

2. Lögð er til breyting á 8. gr. með hliðsjón af nýsamþykktum lögum um áframhaldandi gildi samninga með tilkomu gjaldmiðilsins evrunnar.

3. Lögð er til orðalagsbreyting á ákvæði 11. gr. þannig að í stað þess að kveða á um að arðsjóður skuli ávaxtaður á bestu fáanlegum vaxta- og verðtryggingarkjörum skuli hann ávaxtaður í tryggum og auðseljanlegum verðbréfum eða innlánum.

4. Loks er lögð til breyting á ákvæði 13. gr. um gildistöku, meðal annars með hliðsjón af breytingu á 8. gr., sbr. 2. lið hér að framan.

Einnig fylgir brtt. lögð fram af Vilhjálmi Egilssyni um smá efnisatriði, þ.e. að í 10. gr. komi ný grein sem orðist svo:

Orðin ,,og 2. mgr. 9. gr.`` í niðurlagi fyrri málsliðar 1. mgr. 31. gr. laganna falla brott.

Undir nál. þetta skrifa allir nefndarmenn efh.- og viðskn., þó með fyrirvara þeir Sighvatur Björgvinsson, Ágúst Einarsson og Steingrímur J. Sigfússon.