Svavar Gestsson:
Herra forseti. Í samræmi við þá afstöðu sem fulltrúar okkar í efh.- og viðskn. höfðu í þessu máli og fram kom í atkvæðagreiðslu og umræðum við 2. umr. málsins greiðum við ekki atkvæði um þetta mál eins og það liggur fyrir. Í því eru fjöldamargir þættir sem lúta að skattamálum en við höfum eins og kunnugt er lýst okkur andvíg þeirri sérstöku lækkun á sköttum fyrirtækja sem frv. gerir ráð fyrir.