Hjálmar Jónsson:
Herra forseti. Stjórnmálaumræðan, um meintar ávirðingar, hefur undanfarnar vikur verið á afar lágu plani og fyrir neðan virðingu hv. Alþingis. Málið hefur verið sett í ákveðinn farveg og það mun hafa sinn gang hjá þar til bærum aðilum. Ég tel óþarft að láta sleggjudóma og fordóma hafa áhrif á þann gang eins og hér var gerð tillaga um. Ég segi já við frávísunartillögunni.