Kristinn H. Gunnarsson (andsvar):
Herra forseti. Mig langar að spyrja hv. þm. um það hver stefna Kvennalistans er í sjávarútvegsmálum. Styður Kvennalistinn núverandi aflamarkskerfi og þar með talið framsalið í því? Ef ekki, hvaða kerfi vill Kvennalistinn að verði notað við stjórn fiskveiða?